PRODUCT CARE - SILKI
Umhirða — Silki
Silkið okkar er náttúrulegt og einstaklega mjúkt en viðkvæmt, sérstaklega þegar það er blautt. Fylgdu þessum leiðbeiningum til að silkið haldi gljáa sínum og endist lengur.
Leiðbeiningar fyrir silki
- Handþvoðu í köldu vatni eða þvoðu á 30°C á viðkvæmu prógrammi í þvottapoka
- Notaðu milt þvottaefni fyrir silki eða ull, hvorki bleikiefni né mýkingarefni
- Ekki vinda, rúllaðu frekar í handklæði til að ná vatninu úr
- Ekki setja í þurrkara
- Leggðu flatt eða hengdu til þerris, ekki í beinni sól
- Straujaðu á lágum hita á röngunni ef þarf
- Má þurrhreinsa