Wagtail
Sagan okkar
Hugmyndin að Wagtail kviknaði árið 2017, skömmu eftir að við eignuðumst frumburðinn okkar. Við vorum aðeins tvítug, full af hugmyndum og trúðum því að við gætum gert allt sem okkur langaði til.
Dóttir okkar fékk nafnið María Erla og þaðan kemur nafnið Wagtail sem er enska heitið á Maríuerlunni. Þannig hefur hún verið hluti af sögunni alveg frá upphafi.
Við byrjuðum með stuttermaboli, hettupeysur og kjóla — eiginlega bara allt sem okkur datt í hug! Við prófuðum okkur áfram, lærðum á leiðinni og leyfðum hugmyndunum að ráða för. Þegar við kynntum sundfötin okkar árið 2018 fengu þau frábærar viðtökur og urðu fljótlega stór hluti af Wagtail.
Árið 2024 langaði okkur að bæta einhverju notalegu við fyrir kaldari mánuðina. Þannig komu náttfötin til sögunnar. Viðtökurnar fóru fram úr vonum okkar og það varð fljótt ljóst að þau væru komin til að vera.
Okkur langaði að skapa vörur sem væru auðþekkjanlegar sem Wagtail. Eitthvað persónulegt sem við hefðum sjálf lagt hug og hjarta í. Úr þeim pælingum varð hugmyndin að okkar eigin handmáluðu mynstrum, ásamt vönduðum efnum sem uppfylltu þær kröfur sem við gerðum um gæði og vottanir.
Við fundum barnafataframleiðanda sem var tilbúinn að vinna með okkur, þótt við byrjuðum með lítið magn. Svo gerðist eitthvað sem við höfðum ekki alveg búið okkur undir: bambusnáttfötin með handmáluðu mynstrunum slógu öll fyrri sölumet hjá okkur. Wagtail óx svo hratt að Perla tók skrefið, sagði upp í vinnunni og fór að sinna fyrirtækinu að fullu.
Það sem byrjaði sem lítið og krúttlegt áhugamál, sem við sinntum á kvöldin eftir vinnu og skóla, er í dag orðið miklu stærri hluti af lífinu okkar en við þorðum að ímynda okkur.
En það allra dýrmætasta er samfélagið sem hefur myndast í kringum Wagtail. Þið sem fylgist með, verslið hjá okkur, mætið á viðburði og sendið okkur falleg skilaboð hafið gert þetta allt mögulegt.
Við hlökkum til að halda áfram að skapa fallegar og vandaðar vörur, hitta ykkur og búa til fleiri góðar stundir saman.