PRODUCT CARE - ALLT
Umhirða
Hugsum vel um uppáhaldsvörurnar okkar.
Rétt umhirða hjálpar vörunum þínum að halda mýkt, lit og lögun. Hér finnur þú leiðbeiningar fyrir mismunandi vörur og efni frá Wagtail.
Byrjaðu á þvottamiðanum. Fylgdu alltaf leiðbeiningunum á vörunni ef þær eru frábrugðnar upplýsingunum hér.
Veldu vöruflokk eða efni til að sjá leiðbeiningarnar.
Sundföt Köld skolun · Engin þvottavél eða þurrkari
Efnið í sundfötunum okkar er mjúkt og viðkvæmt. Fylgdu þessum leiðbeiningum til að sundfötin þín endist lengur.
- Skolaðu í köldu vatni fyrir fyrstu notkun ef mögulegt er.
- Skolaðu í köldu vatni eftir hverja notkun og láttu liggja í 30 mínútur ef hægt er.
- Leggðu flatt til þerris, ekki í beinni sól.
- Ekki strauja.
- Ekki þvo í þvottavél eða setja í þurrkara.
- Forðastu gróf yfirborð, til dæmis grófa sundlaugarbakka, þar sem þau geta skemmt efnið.
- Mikið klór og sól geta valdið því að liturinn dofni með tímanum.
- Forðastu snertingu efnisins við sólarvörn og olíur.
Bambusnáttföt 30°C viðkvæmur þvottur · Enginn þurrkari
Bambusefnið okkar er einstaklega mjúkt en viðkvæmt fyrir hita. Fylgdu þessum leiðbeiningum til að náttfötin haldi mýkt sinni og lögun.
- Þvoðu á 30°C á viðkvæmu prógrammi.
- Snúðu flíkinni á rönguna og þvoðu með svipuðum litum.
- Notaðu milt þvottaefni, hvorki bleikiefni né mýkingarefni.
- Ekki setja í þurrkara.
- Leggðu flatt eða hengdu til þerris, ekki í beinni sól.
- Straujaðu á lágum hita ef þarf.
- Ekki þurrhreinsa.
Muslin rúmföt 40°C þvottur · Þurrkari á lágum hita
Muslin rúmfötin okkar eru úr 100% lífrænni bómull sem mýkist með hverjum þvotti. Fylgdu þessum leiðbeiningum til að rúmfötin endist sem lengst.
- Þvoðu á 40°C.
- Þvoðu með svipuðum litum.
- Notaðu milt þvottaefni án bleikiefna.
- Slepptu mýkingarefni — efnið mýkist með hverjum þvotti.
- Má fara í þurrkara á lágum hita eða hengja til þerris.
- Krumpaða áferðin er hluti af efninu og því óþarfi að strauja.
- Ekki þurrhreinsa.
Lyocell 30°C viðkvæmur þvottur · Enginn þurrkari
Lyocell efnið okkar er silkimjúkt og andar vel en er viðkvæmt fyrir hita. Fylgdu þessum leiðbeiningum til að efnið haldi mýkt sinni og gljáa.
- Þvoðu á 30°C á viðkvæmu prógrammi.
- Snúðu á rönguna og þvoðu með svipuðum litum.
- Notaðu milt þvottaefni, hvorki bleikiefni né mýkingarefni.
- Ekki vinda eða nudda efnið þegar það er blautt.
- Ekki setja í þurrkara.
- Leggðu flatt eða hengdu til þerris, ekki í beinni sól.
- Straujaðu á lágum hita ef þarf, helst á röngunni.
- Ekki þurrhreinsa.
Æfingaföt 30°C þvottur · Án mýkingarefnis
Æfingafötin okkar eru teygjanleg og draga í sig raka. Fylgdu þessum einföldu leiðbeiningum til að fötin haldi lögun sinni.
- Þvoðu á 30°C í þvottavél.
- Snúðu flíkinni á rönguna og þvoðu með svipuðum litum.
- Þvoðu sem fyrst eftir æfingu og láttu fötin ekki liggja blaut í tösku.
- Ekki nota bleikiefni eða mýkingarefni.
- Má fara í þurrkara á lágum hita.
- Ekki strauja.
Silki Mildur þvottur · Enginn þurrkari
Silkið okkar er náttúrulegt og einstaklega mjúkt en viðkvæmt, sérstaklega þegar það er blautt. Fylgdu þessum leiðbeiningum til að silkið haldi gljáa sínum og endist lengur.
- Handþvoðu í köldu vatni eða þvoðu á 30°C á viðkvæmu prógrammi í þvottapoka.
- Notaðu milt þvottaefni fyrir silki eða ull, hvorki bleikiefni né mýkingarefni.
- Ekki vinda. Rúllaðu frekar í handklæði til að ná vatninu úr.
- Ekki setja í þurrkara.
- Leggðu flatt eða hengdu til þerris, ekki í beinni sól.
- Straujaðu á lágum hita á röngunni ef þarf.
- Má þurrhreinsa.
Pointelle náttföt 30°C viðkvæmur þvottur · Þvottapoki
Náttfötin okkar eru úr mjúkri pointelle bómull með litlum götum. Fylgdu þessum leiðbeiningum til að náttfötin haldi lögun sinni og mýkt.
- Þvoðu á 30°C á viðkvæmu prógrammi, helst í þvottapoka.
- Snúðu flíkinni á rönguna og þvoðu með svipuðum litum.
- Þvoðu ekki með flíkum með rennilásum eða frönskum rennilásum, þar sem þeir geta fest sig í götunum.
- Notaðu milt þvottaefni án bleikiefna.
- Leggðu flatt til þerris eða settu í þurrkara á lágum hita.
- Straujaðu á lágum hita ef þarf.
- Ekki þurrhreinsa.
Hör og Tencel 30°C viðkvæmur þvottur · Enginn þurrkari
Efnið okkar er blanda af hör og Tencel, létt og andar vel en er viðkvæmt fyrir hita og núningi. Fylgdu þessum leiðbeiningum til að efnið haldi mýkt sinni og lögun.
- Þvoðu á 30°C á viðkvæmu prógrammi.
- Snúðu flíkinni á rönguna og þvoðu með svipuðum litum.
- Notaðu milt þvottaefni, hvorki bleikiefni né mýkingarefni.
- Ekki vinda eða nudda efnið þegar það er blautt.
- Ekki setja í þurrkara.
- Hengdu til þerris, ekki í beinni sól.
- Straujaðu á meðalhita meðan efnið er enn örlítið rakt.
- Ekki þurrhreinsa.
Ertu í vafa um umhirðu vörunnar þinnar?
Sendu okkur línu á wagtail@wagtail.is og við hjálpum þér.